Þórður Áskell Magnússon heiti ég og bý á Grundarfirði, á Grundargötu 84  ásamt konu minni henni Dóru Henriksdóttir og  syni okkar  Tómasi Theodóri Þórðarsyni.   Ég er fæddur 1967 og uppalinn í Reykjavík en flutti til Grundarfjarðar 1991.

Eldri strákurinn okkar hann  Przemyslaw Andri Þórðarson er fluttur að heiman og hefur stofnað litla fjölskyldu að Sæbóli 35 í Grundarfirði þar sem hann býr með Evu Kristínu og litlu prinsessunni þeirra henni Alexöndru Björgu Andradóttur.

 

    Ég ólst upp í Reykjavík, gekk í og kláraði Menntaskólann við Sund, fór eftir það til sjós í tvö ár en síðan lá leiðin til Akureyrar í sjávarútvegsfræði háskóla Akureyrar, þar sem mér leiddist ógurlega og hætti eftir fyrsta árið þar.  Þá var stefnan sett á að byrja með fyrirtæki í sjávarútvegi.  Við feðgarnir fundum iðnaðarhúsnæði á Grundarfirði sem var að niðurlotum komið en kostaði ósköp lítið í leigu ásamt kofaskrifli til að búa í.  Þannig var byrjað af miklum vanefnum með tvær hendur tómar og enga tiltrú furðulostinna bæjarbúa sem höfðu aldrei fengið svona sendingu úr höfuðborginni áður.    Einhvern veginn tók þessa basl á sig mynd og hófum við að kaupa nokkra smábáta til þess að útvega okkur tryggari atvinnu.  Á endanum gerðum við út Brynjar sem við leigðum,  Margréti SH sem við keyptum með Birni Heiðari, Sigrúnu SH sem við keyptum með Jóa Arngríms,  Stjörnuna VE,  Hugrúnu SH og Helgu Hafsteins SH.  Með ótrúlegri þrautseigju tókst okkur að vera búnir að selja alla þessa báta áður en kvótakerfið hefði gert okkur ríka á þessu.  Þetta var ósköp gaman þótt hagnaðurinn hefði mátt vera meiri af þessu.  Ég er búinn að skanna nokkrar gamlar myndir af þessu tímabili og setja þær hér.

 

    Útgerðarsögu minni lauk skyndilega árið 1996 þegar við feðgarnir tókum smá snerru sem leiddi til þess að okkar viðskiptum lauk tímabundið.  Ég sem sagt seldi minn hlut í þessu, hætti og gerði það sem hlaut að blasa við sem eðlilegt framhald; ég keypti veitinga og skemmtistaðinn Ásakaffi.  Þetta var skemmtistaður, pöbb, hádegisverðarstaður, veislur voru haldnar þarna auk þess sem seldar voru pizzur, hamborgarar og þess háttar.  Böll héldum við ca tvisvar á mánuði.  Þetta var mjög skemmtilegt en mikil vinna.  Vinnudagarnir voru ekki kannski svo ýkja erfiðir en allt of langir.  Ég á því miður ekki margar myndir af þessu tímabili en þegar ég verð búinn að finna þær og skanna þær inn þá mun ég setja þær hér

 

    Þegar ég seldi Ásakaffi um vorið 1997 eftir að hafa rekið það í um tvö ár tók við smá millibilsástand.  Ég tók mér fjögurra mánaða frí og ferðaðist til Póllands og tók ástfóstri við landið.  Þangað ferðumst við hjónin oft enda eigum við yndislegan sumarbústað þar.  Þar er flott að vera.  Ég tala pólsku reiprennandi nú í dag og gæti vel hugsað mér að eyða ellinni þarna.  Við hjónin höfum aðeins verið að fjárfesta þarna og það hefur gengið ævintýralega.  Við hefðum betur veðjað aðeins meiru en uppgangurinn í landinu er ótrúlegur.  Það sem margir ekki vita um Pólland er að landið tilheyrir alls ekki austur Evrópu, landið er nákvæmlega fyrir miðri Evrópu en það varð austur Evrópa í hugum fólks vegna kalda stríðsins 1950-1989.  Landfræðileg lega landsins breyttist þó ekki, sjá mynd hér.  Pólland er talið stofnað árið 966 og þá í ótrúlega líkri mynd/stærð og það er í dag.  Eftir að Pólska-Litháenska ríkjasambandið leið undir lok árið 1795 hvarf Pólland af landakortum heimsins.  Pólland komst aftur á landakort Evrópu klukkan 11 þann ellefta nóvember 1918.  Þá hafði Pólland ekki verið á landakortum heimsins frá árinu 1795 eða í 123 ár.   Pólverjar tóku við landinu sínu í algerri rúst eftir fyrri heimsstyrjöldina og endurbyggðu það á árunum 1918-1939 en þá réðust nasistar inn í landið þann 1 september en það margir vilja gleyma er að sovétmenn réðust einnig inn í landið þann 17 september sama ár og var því Póllandi hertekið ekki bara af þjóðverjum strax í byrjun 1939 heldur einnig af sovétríkjunum.  Heimstyrjöldinni lauk svo fyrir bróðurpart Evrópu 1945 en ekki fyrir Pólland.  Pólland var hersetin þjóð með leppstjórn alveg þangað til loka árs 1989.  Engin þjóð í Evrópu fékk sömu útreið í síðari heimsstyrjöldinni og Pólland, landið var gersamlega lagt í rúst og tæp 17% þjóðarinnar dó í stríðinu sem var hæsta hlutfall nokkurrar þjóðar.  Eftir stríð tók við mikið niðurlægingartímabil fyrir Pólland.  Pólverjar, sem töldu Sovétmenn jafn seka og þjóðverja, voru hernuminn af þeim í 44 ár til viðbótar.   Til þess að greiða fyrir lausn landsins frá sovét gerði Pólland samninga við sovétríkin um sölu á kolum, rafmagni, kartöflum og ýmsu öðru á "vægu" verði og eru þessir samningar til fimmtíu ára.  Þeir losna því ekki fullkomlega undan stóra bróðir fyrr en árið 2040. Í þessu ljósi verður að skoða stöðu Póllands og Pólverja.  Verði ekki önnur heimsstyrjöld eða álíka hamfarir spái ég því að Pólland verði kominn upp að hlið ríkustu Evrópuríkja fyrir árið 2020.  Athyglisvert í stöðu Íslands í dag að íslendingar gerðu það sama við sitt eigið land sem tvær heimstyrjaldir gerðu Póllandi!

 

    Þegar ég kom heim frá Póllandi var kominn tími til að gera eitthvað nýtt.  Í ágúst árið 1998 stofnaði ég fyrirtækið Djúpaklett ehf sem ég hef rekið síðan.  Ankerið í þeim rekstri er löndun og fiskumsýsla.  Við hófum fljótlega saltfiskverkun, keyptum húsnæði undir þá verkun að Sólvöllum 6.  Það gekk prýðilega en um árið 2004 fór að halla verulega undan fæti á saltfiskmörkuðum og hættum við saltfiskverkun það ár.  Árið 2002 hófum við samstarf við HB á Akranesi.  Gekk það mjög vel þar til að HB og Grandi voru sameinuð í eitt fyrirtæki.  Það er skemmst frá að segja að við áttum ekki skap með nýjum eigendum og hættum við rekstri þar árið 2006.  Höfðum við á þessum árum séð um landanir fyrir fyrirtækið sem og sáum við alfarið um síldar, loðnu og hrognafrystingu fyrir þá.  Í dag erum við einnig verktakar fyrir Snæfrost hf og sjáum um allan daglega rekstur Snæfrost hf sem og fyrir Fiskmarkað íslands á Grundarfirði.  Við byggðum árið 2008 750 fermetra húsnæði á uppfyllingu á norðurgarði þar sem bæði Djúpiklettur og Fiskmarkaður Íslands eru til húsa sameiginlega í húsnæði Djúpakletts ehf.  Við fluttum inn í það húsnæði vorið 2009.  Myndir af þeirri byggingu eru hér

 

    Þess utan  sit ég í stjórn Snæíss hf og er stjórnarformaður Snæfrosts hf.  Þannig hef ég dundað mér við að reka fiskverkun, útgerð, slægingarþjónustu, útflutning á fiski í gáma og flug, verið með umsjón á loðnu, síldar og loðnuhrognafrystingu, séð um fiskmarkað og frystihótel, unnið í því að koma á fót ísverksmiðju, átt í bílaverkstæði og verið kráarrekandi þessi ár síðan ég kom til Grundarfjarðar árið 1991 og þess utan keypt og selt fleiri fasteignir en ég get með nokkru móti munað  - þannig að þetta hefur aldrei verið leiðinlegt.

 

    Áhugamálin eru fjölskyldan, golf, mótorhjól, ferðalög og pólitík (nokkur vegin  í þessari röð) og minni áhugamál eru snooker, bridge, gítarglamur og fallegar konur. (ekki endilega í þessari röð)

 

    Golf; ég byrjaði á þessu vorið 2005 með konunni.  Hún var strax miklu betri í þessu en ég og er það því miður enn.  Forgjöfin lækkaði ekki neitt fyrsta árið, mér og keppnisskapi mínu til lítillar ánægju.  Um haustið fórum við til Islantilla á Spáni.  Myndir að þeirri ferð eru hér.    Árið 2006 lækkaði forgjöfin eitthvað pínulítið eða úr 36 um vorið í 27 um haustið.  Þá um veturinn fórum við í golfferð til Jamaica.  Það var virkilega góð ferð og eru myndir úr þeirri ferð hér.  Árið 2007 lækkaði forgjöfin úr 27 niður í 20  (þetta er allt að koma)  Við hjónin verðlaunuðum okkur svo  með golfferð til Thailands þau um haustið.  Virkilega góð ferð en myndir úr þeirri ferð eru hér.  Árið 2008 fórum við í vorferð í febrúar til Dóminíska Lýðveldisins til þess að spila.  Þar var frábært að spila golf, mæli með því.  Myndir frá þeirri ferð eru hér  Síðar fórum við til Orlando, bæði um haustið 2008 og síðar fljótleg eftir áramótin 2009 og spiluðum þar.  Þar er frábært að vera og ennþá hægt að fá eitthvað pínulítið fyrir krónuna.  Forgjöfin var komin í 17 í lok vertíðar 2009 þannig að ég stefni í að verða ágætur um áttrætt.  Ég er nú gjaldkeri golfklúbbs Vestarr og sé um heimasíðu félagsins.  Hér er slóðin á þá síðu: http://vestarr.net/  Við keyptum okkur svo litla íbúð í Ameríku sem við leigjum svo út til gesta og gangandi.  Íbúðin er á golfvelli á Ventura svæðinu í Orlando.  Hér eru myndir af henni ef einhver hefur áhuga á að leigja hana af okkur.

 

    Mótorhjól;  Mótorhjólin;  hræðileg della sem ekki er hægt að þroskast upp úr.  Á hjól bæði á Íslandi og annað í Póllandi.   Ferðast talsvert í Póllandi enda enga stund verið að skreppa inn til Litháen, Rússlands, Þýskalands og Slóvakíu.  Fór frá Póllandi árið 2005 niður til Slóvakíu, þaðan í gegnum Ungverjaland, svo til Slóveníu og endaði við Adríahaf kominn til Króatíu. Og svo þurfti maður náttúrulega að fara sömu leið til baka.  Á bakaleiðinni fékk ég verstu rigningu sem ég hef séð.  Það var skrýtið að keyra 500 km í einu í gegnum flóð sem umluktu allt Ungverjaland.  Ekki skemmtilegt á keppnismótorhjóli.  Ég var í rauðum leðurgalla og þegar ég fór úr honum þá var ég orðinn allur rauður og var þannig í nokkrar vikur.  Ég á tvö hjól í dag, eitt í Póllandi og annað hér heima.  Myndir af þeim eru hér og svo á ég einn lítinn vélsleða.  Hér eru myndir af stuttri ferð á vélsleðanum sem við fórum vorið 2008

    Ferðalög;  við reynum að fara út eins og kostur er.  Ef ég man það rétt þá eru þetta löndin sem við höfum heimsótt:  Danmörk, , Pólland Svíþjóð, Noregur, Þýskaland, England, Frakkland, Spánn, Litháen, Rússland, Úkraína, Tékkland, Ungverjaland, Slóvenía, Króatía, Portúgal, Indland, Tyrkland, Nepal, Thaíland, Jamaica, Bandaríkin, Dóminíska lýðveldið og Vestmannaeyjar.

  

    Pólitíkin.  Ég telst til frjálslyndra hægri manna.  Helstu áhugamál mín í pólitík ef ég gæti einhverju breytt væri að markaðsvæða landbúnaðarkerfið, gera skýrari mörk milli dóms/framkvæmda og lagasetningarvalds,  minnka ríkisumsvif eins og kostur er, gera leikreglur á markaði skýrar og einfaldar - ég tel að ríkið eigi að setja reglur og hafa öflugar eftirlitsstofnanir til að fylgjast með að lögum sé framfylgt en ekki endilega vera framkvæmdaraðili.  Ég tel mikilvægt að aðilum á markaði séu sköpuð góð skilyrði en jafnframt veitt aðhald með því að koma í veg fyrir einokun og/eða misnotkun sé það á annað borð hægt.   Einnig tel ég eðlilegt að skilgreina samningsmarkmið og hefja umræður um hugsanlega inngöngu í ESB en ég tel upptöku evru algera nauðsyn hið fyrsta.  Ég er flokksbundinn sjálfstæðismaður og starfa fyrir flokkinn, er fyrsti varamaður í bæjarstjórn Grundarfjarðar og er formaður byggingarnefndar.  Því miður eru bæjarstjórnir ekki þess umkomnar að breyta miklu í gangi heimsmála/landsmála enda fjársveltar með eindæmum.  Gott væri að geta breytt því.

 

    Önnur félagasamtök sem ég starfa í eða er félagsmaður í eru;  Félagið ísland Palestína,  er gjaldkeri í golfklúbbi Vestarr,  Lions þar sem ég er ritari Ásatrúarfélagið - en mér finnst það stórskemmtileg tilhugsun að til skuli vera fólk sem heldur í vorn forna sið - að öðru leiti er ég algerlega trúlaus, HSL hjólaklúbbur,  og Siðmennt samtök húmanista - það ríkir mikill misskilningur um hvað það er að vera húmanisti - hér fylgir skýring: 

• Við styðjumst við skynsemi og vísindi til að öðlast skilning á alheiminum og viðfangsefnum samfélagsins.
• Við hörmum allar þær tilraunir sem í gangi eru til að gera sem minnst úr mannlegri skynsemi og leita í staðinn skýringa og björgunar í yfirnáttúrulegum fyrirbærum.
• Við erum þeirrar skoðunar að uppgötvanir í vísindum og nýjungar í tækni geti stuðlað að betra lífi.
• Við styðjum opið, víðsýnt og fjölþætt samfélag og við teljum að lýðræði sé besti kosturinn til að vernda mannréttindi bæði gagnvart einræðissinnuðum forréttindahópum og umburðarlitlum fjöldahreyfingum.
• Við styðjum aðskilnað ríkis og kirkju.
• Við viljum efla listina að ná samkomulagi og sáttum og á þann hátt viljum við leysa ágreining og efla gagnkvæman skilning manna á meðal.
• Við leitumst við að tryggja réttlæti og sanngirni og útrýma umburðarleysi og ofsóknum.
• Við viljum hjálpa þeim sem eiga við fötlun eða sjúkdóma að stríða þannig að þau geti hjálpað sér sjálf.
• Við reynum að yfirstíga skiptingu manna í fjandsamlega hópa sem hver um sig byggir tilvist sína á ákveðinni sérstöðu, til dæmis kynþætti, trúarbrögðum, kyni, þjóðerni, stétt, tungumálum eða kynhneigð og fá fólk úr ólíkum hópum til að vinna saman að málefnum sem eru til góðs fyrir mannkyn allt.
• Við viljum standa vörð um verðmæti jarðarinnar og auka þau, að vernda þessi verðmæti fyrir kynslóðir framtíðarinnar og hindra allar óþarfa þjáningar annarra dýra.
• Við viljum njóta lífsins sem við þekkjum núna og efla sköpunargáfu okkar sem allra mest.
• Við viljum rækta sem best siðræn gildi okkar og okkar á meðal.
• Við virðum réttinn til einkalífs. Fullorðið fólk á þar að hafa fullt frelsi til að velja og hafna, fylgja kynhneigð sinni að eigin vild, að eignast börn samkvæmt eigin ákvörðunum, að hafa aðgang að víðtækri og góðri heilbrigðisþjónustu og fá að deyja í reisn.
• Við setjum traust okkar á almenn siðræn verðmæti: Tillitssemi, heiðarleika, drengskap, sannsögli, ábyrgð. Siðfræði húmanismans er ávallt lögð á mælistiku gagnrýnnar og upplýstrar hugsunar. Saman sköpum við tilteknar siðrænar reglur og við dæmum gildi þessara reglna eftir árangrinum.
• Við leggjum mikla áherslu á siðmennt barna okkar. Við viljum efla skynsemi og samúð.
• Við viljum efla listir engu minna en vísindi.
• Við erum borgarar alheimsins og horfum með hrifningu á ný sannindi um eðli hans.
• Við teljum að nýjar hugmyndir eigi að standast fræðilega rannsókn; að öðrum kosti vantreystum við þeim.
• Við erum þeirrar skoðunar að húmanisminn sé raunhæfur valkostur við trúarbrögð örvæntingar og hugmyndafræði ofbeldis. Húmanisminn er uppspretta ríkrar persónulegrar reynslu og ánægju við að hjálpa öðrum.
• Við veljum bjartsýni en ekki svartsýni, von en ekki örvæntingu, lærdóm en ekki kreddur, sannleika en ekki fáfræði, gleði en ekki sekt eða synd, umburðarlyndi en ekki ótta, ást en ekki hatur, samúð en ekki eigingirni, fegurð en ekki ljótleika og skynsemi en ekki blinda trú eða afneitun rökréttrar hugsunar.
• Í nafni manngildisins viljum við standa vörð um og rækta allt það göfugasta og besta sem við getum greint.

 

    Hér fyrir neðan má nálgast bók með gítargripum sem ég hef verið að klúðra saman og er vel nothæf fyrir partýspilara.(Klikka á myndina)

Íslensk     Elend

 

Sérlega áhugaverðir tenglar: Chomsky     Richard Dawkins  Er jörðin að Hitna?  

 

        Mín 5 cent: Sá sem er reiðubúinn að fórna frelsinu fyrir öryggi á hvorugt skilið og mun á endanum tapa báðu.  (Benjamin Franklin)