Fyrir golfara, mjög gott er að panta á golfnow.com Mikið ódýrara en að kaupa á völlunum sjálfum |
Hér er svona smá umsögn um nokkra golfvelli í nágrenninu. |
Golfvellir spilaðir: |
Alaqua. Frábær 4 stjörnu völlur. 40-45 mín, ekki toll road. Hreint frábær völlur. |
BlackBear, frábær völlur. 50-60 mín. Með betri völlum. 4 Stjörnur. |
ChampionsGate, góður völlur en rándýr. 1 klst keyrsla. Ekki fyrir neina kylfinga yfir 10-15 í forgjöf, mjög erfiður en flottur. |
Celebration. 4-5 stjörnu völlur, 45 mín – ekki toll road. Virkilega flottur völlur, frekar dýr og svolítið erfiður. En frábær völlur. |
Cocoa Beach Country club. Ágætur völlur, brautir grófar, green góð. Frábært combo, fara á ströndina kl 9, komin þangað kl 10. Vera á ströndinni til 3 og spila svo 18 og fara heim. Mæli með þessu |
Dubsdread. Soldið sveitó, ekki hágæðavöllur. Gaman að spila samt. |
Eagle Creek. 3-4 stjörnu völlur. 30 mín, ekki toll road. Mjög góður völlur. |
Eastwood. 3 stjörnu völlur. 20 mín. Góður völlur. Umhirða misjöfn. |
Fairways. 2,5 stjörnu völlur. Góður fyrir lítinn pening. 20 mín. Stuttur og ágæt skemmtun. Sveitavöllur. |
Golden Ocala. Klikkaður völlur sem er erfitt að komast inn á. Helmingur brautanna eru nákvæmar eftirlíkingar af frægustu brautum frægra valla víðsvegar í heiminum. 1,5 klst |
Harmony Golf Preserve; 30 mínútur. Langur en frábær völlur. 3+ stjörnu völlur. |
Kissimme Bay Country Club. Ágætur skógarvöllur en ekkert spes. Mjög líkur Rio Pinar. 30 mín. |
Legends. Mjög góður völlur, ekki stuttur. Er 4 stjörnur, á pari við Harmony. |
North Shore. 3 stjörnu völlur. 30 mín, ekki toll road. Góður völlur en umhirða misjöfn. Ath, viðbót 2019. Fáránlega dýr og fengum hörmulegar viðtökur þegar við komum og dónaskap, förum aldrei aftur á þennan völl. |
Rio Pinar. 3 stjörnu völlur. 5 mín. Erfiður skógarvöllur. Ekki alltaf vel hirtur. |
Rolling Hills. 2-3 stjörnur. Illa hirtur en skemmtilegur. 40-50 mín. |
Royal st. Cloud, 40 mín ekki toll road. Með skemmtilegri völlum, frábær “Links” völlur. 4 stjörnur. |
Sanctuary Ridge. 3-4 stjörnu völlur. Mikið landslag, frábær völlur. 40-50 mín. Umhirða stundum ekki nógu góð. |
Stonegate Golf Club. Kissimmee. 3-4 Stjörnur, flottur völlur, langt að keyra (rúmur klst) og ekki ódýr. |
Stoneybrook West. 3 stjörnu völlur. Góður völlur. 20 mín, ekki toll road. |
Sweetwater, 3-4 stjörnu völlur. Mjög góður en mjög erfiður. Þröngur skógarvöllur. 40 mín. |
Twin Rivers, 25 mín. 3-3,5 stjörnu völlur. Erfiður en skemmtilegur. |
Ventura. Okkar völlur. Mjög góður 3 stjörnu völlur. Vel hirtur en aðeins of hæg spilamennska. Stuttur. |
Wedgefield. 2-3 stjörnur. Ok en ekki meira. 20 mín. |
Winter Park. 9 holu völlur. Lélegur 1-2 stjörnur. |
Winter Pines. Par 67 völlur. Skemmtilegur en ekki alvöru. 2 stjörnur. |