Tveggja svefnherbergja íbúð til leigu í Orlando. 3930 Southpointe Drive apt 219
Ég er hættur að sjá sjálfur um leiguna en netfangið hjá Paul sem sér um þetta fyrir mig er: morency.paul@yahoo.com
Hér eru allir lausir tímar, verð ofl. NB. Þessi verð sem birtast þar eru bara fyrir fólk sem er að stoppa í skemmri tíma en 3 vikur. Fyrir alla aðra er langbest að senda Paul tölvupóst og fá verð fyrir lengri tíma.
Síminn hjá Paul er +1 407 490 6647 en ef það eru tungumálaörðugleikar þá endilega senda mér tölvupóst á djk@djk.is og ég skal sjá um samskiptin.
Tveggja svefnherbergja íbúð til leigu í Íslendingahverfinu í Ventura í Orlando á Florida.
Hún er í Oasis hverfinu í Ventura. Íbúðin er í húsi nr 3930 og hefur númer 219 á efri hæð í því húsi.
Íbúðin er 100 fermetrar.
Til að komast í Ventura hverfið er auðveldast (komandi frá MCO flugvellinum) að fara í litla hliðið á gatnamótum Woodgate blvd og Pershing ave (Leiðin er; Keyrt niður á South Semoran Blvd, hægri beygja á Pershing Ave og vinstri beygja til Woodgate Blvd). Það lokar hins vegar kl 23 á kvöldin. Aðal hliðið er opið 24/7 en það er á gatnamótum Curryford Road og Woodgate blvd. Þá er farin sama leið nema hægri beygja af S Semoran Blvd yfir á Curry Ford og hægri beygja af Curry Ford inn á Woodgate Blvd.
Upplýsingar sem þarf að hafa fyrir ESTA pappíra: (heimilisfang)
3930 Southpointe Drive apt 219, 32822, Orlando, Florida
Íbúðin er staðsett rétt um 700 metra frá fyrstu braut á Ventura vellinum.
Hér eru nokkrar myndir: (klikka á myndir til að fá þær stórar)
Báðum svefnherbergjum fylgir klósett og baðherbergi.
Heimilisfangið er 3930 Southpointe drive, 328822 Orlando Florida. Íbúð nr 219.
Áhugasamir geta hringt í síma 499 1234 eða sent tölvupóst á djk@djk.is
Gagnlegar upplýsingar fyrir notendur hússins:
Lyklar; Það hangir eitt sett af lyklum ofan við hurðina þegar gengið er inn. Vinsamlegast skiljið þá lykla eftir á sama stað þegar íbúðinni er skilað. Sá lykill er á hvítu spjaldi sem einnig er “lykill” að líkamsræktinni í klúbbhúsinu.
Ef vara er pöntuð til hússins er henni yfirleitt skilað að dyrum en stundum er hún sett í pósthólf hússsins. Á hvíta spjaldinu ofan við hurðina eru aukalyklar að íbúð en einnig er líka lykill að pósthólfi hússins. Númerið á pósthólfi hússins nr 107. Pósthólfin eru öll rétt norðan við sundlaugina.
Bílapassi; Við komu að svæðinu þarf að sýna leyfisbréf sem ég sendi til allra sem leigja húsið. Síðan þarf að fara inn á “admin office” sem er 50 metra í suður af klúbbhúsinu og sýna leyfisbréfið. Muna að taka með sér lykla af bílaleigubílnum, Þar eru allar upplýsingar um bílinn, Þá fá menn afhent bréf sem geyma á í bílnum sem er leyfi fyrir bílnum á svæðinu og leyfi inn á svæðið.
Poolpass: Mikilvægt er að fólk hafi með sér svokallaðann “poolpass” þegar farið er út í laugina sem er rétt við húsið. Hann hangir á vegg, grænt spald í bandi, þegar komið er inn í íbúðina. Fyrir ofan hurðina hangir einnig hvítt spjald sem veitir aðgang í klúbbhúsið, líkamsrækt ofl. Vinsamlegast skiljið þau eftir á sama stað við brottför.
Sími í hliðinu er;
407-380-5672 Gott er að vita að ef það þarf að hleypa gestum inn á svæðið, þá er það gert í gegnum https://gateaccess.net/login.aspx
Username: 3219478989 og passw: 002123
Aðrir símar sem eru mikilvægir eru:
Pro shop (til að panta rástíma á Ventura golfvellinum) 407-277-2640
Veitingarstaðurinn á ventura 407-380-1822
Admin á Ventura (einungis í neyð) 407-275-7002
Þórður Magnússon, eigandi hússins, 499 1234 – ef hringt er úr bandarísku númeri þá þarf að velja +354 499 1234.
Sjónvarpið
Sjónvarpið. Við erum með Spectrum áskrift.
Hægt er að skoða dagskrá sjónvarpsstöðvanna á netinu: http://tvexplorer.brighthouse.com./# ZIP code 32822 ef spurt er.
Internet;
Í húsinu er þráðlaust internet. Til að tengjast því þarf að finna í wireless network net sem heitir „BHNTG1672G80C2“. Netið er nokkuð öflugt, okkar reynsla er um 400mbsec.
Sími;
Það að er sími í húsinu og er númerið 407-286-1556 Það er ókeypis að hringja úr honum í öll númer í bandaríkjunum sem og flest allra landa heims, þar með talið Ísland. En til að hringja til íslands er það gert svo; Fyrst er valið 011 svo landsnúmerið 354 og svo númerið. Ef einhverjum langar að hringja til mín til Íslands þá er það gert svo: 011-354-8985463
Ísskápurinn er með síuðu vatni sem er að minnsta kosti eins gott og vatn sem keypt er út í búð. Það er því alger óþarfi að kaupa vatn og bera inn – nema menn vilji það að sjálfsögðu. Ef eitthvað er til/skilið eftir í ísskáp eða frysti þá um að gera að nota það ef áhugi er eða lyst á
Reyklaus hús; það eru allir hættir þessu hvort sem er, er það ekki?
Gott að vita;
Íslendingar hittast í klúbbhúsinu á miðvikudögum kl 17.
Annað; Þegar húsinu er skilað vinsamlegast stillið kælinguna á húsinu (AC- ið) á auto og á 28 gráðu hita.