Willowpointe

Willowpointe –  Tveggja svefnherbergja íbúð til leigu í Orlando

Ég er hættur að sjá sjálfur um leiguna en netfangið hjá Paul sem sér um þetta fyrir mig er:   morency.paul@yahoo.com

Hér eru allir lausir tímar, verð ofl.  NB. Þessi verð sem birtast þar eru bara fyrir fólk sem er að stoppa í skemmri tíma en 3 vikur.  Fyrir alla aðra er langbest að senda Paul tölvupóst og fá verð fyrir lengri tíma.

Síminn hjá Paul er +1 407 490 6647 en ef það eru tungumálaörðugleikar þá endilega senda mér tölvupóst á djk@djk.is og ég skal sjá um samskiptin.

Tveggja svefnherbergja íbúð til leigu í Íslendingahverfinu í Ventura í Orlando á Florida.
Hún er í Willowpointe  hverfinu í Ventura.  Íbúðin er í húsi nr 6114 á neðri hæð.
Íbúðin er 90 fermetrar.

Bæði svefnherbergin er með fataherbergi.  Báðum svefnherbergjum fylgir klósett og baðherbergi.

Neðan við myndirnar eru gagnlega uppplýsingar fyrir leigendur.

Ef skoða á myndirnar stórar þá þarf að klikka á myndirnar.

Aðkoma að húsinu

Stofa

Eldhús

Master svefnherbergi

Gengið úr master svefnherbergi inn á bað

Fataherbergi Master

Hitt svefnherbergið

Hægt að fara úr því beint inn í garð

Fataskápur í hinu svefnherb.

Hitt klósettið

Svalir/Screen

Og íbúðinni fylgir þvottavél og þurrkari.

Þetta hverfi leyfir útigrill.  Þetta grill fylgir íbúðinni

Þegar það er ekki notað þá á að geyma það í skápnum í screeninu (og það líka finnst þar)

Ef gasið klárast þá er þetta gasið sem passar í grillið, fæst í Lowes, HomeDepot og út um allt:

Sundlaug:
Húsinu fylgir sundlaug sem er örstutt frá íbúðinni.  Hún er upphituð á veturna.

Hér er eitt video af því og nokkrar myndir.

Og svo er sundlaug sem öll húsin í Ventura hafa aðgang að sem er við klúbbhúsið.

Almenna upplýsingar fyrir leigendur:

Til að komast í Ventura hverfið er auðveldast (komandi frá MCO flugvellinum) að fara í litla hliðið á gatnamótum Woodgate blvd og Pershing ave  (Leiðin er; Keyrt niður á South Semoran Blvd, hægri beygja á Pershing Ave og vinstri beygja til Woodgate Blvd).  Það lokar hins vegar kl 23 á kvöldin.  Aðal hliðið er opið 24/7 en það er á gatnamótum Curryford Road og Woodgate blvd.  Þá er farin sama leið nema hægri beygja af S Semoran Blvd yfir á Curry Ford og hægri beygja af Curry Ford inn á Woodgate Blvd.

Upplýsingar sem þarf að hafa fyrir ESTA pappíra: (heimilisfang)

Heimilisfang: 6114  Burnside Circle,  32822, Orlando, Florida.

Gagnlegar upplýsingar fyrir notendur hússins:

Lyklar; Það hangir eitt sett af lyklum ofan við hurðina þegar gengið er inn. Vinsamlegast skiljið þá lykla eftir á sama stað þegar íbúðinni er skilað.  Sá lykill er á hvítu spjaldi sem einnig er „lykill“ að líkamsræktinni í klúbbhúsinu.

Ef vara er pöntuð til hússins er henni yfirleitt skilað að dyrum en stundum er hún sett í pósthólf  hússsins.  Á hvíta spjaldinu ofan við hurðina eru aukalyklar að íbúð en einnig er líka lykill að pósthólfi hússins.  Númerið á pósthólfi hússins nr 6114.  Pósthólfin eru öll rétt hjá íbúðinni, sjá mynd:

Hér eru póstkassarnir

Okkar er merktur 6114

Bílapassi;  Við komu að svæðinu þarf að sýna leyfisbréf sem ég sendi til allra sem leigja húsið.  Síðan þarf að fara inn á „admin office“ sem er 50 metra í suður af klúbbhúsinu og sýna leyfisbréfið.  Muna að taka með sér lykla af bílaleigubílnum, Þar eru allar upplýsingar um bílinn, Þá fá menn afhent bréf sem geyma á í bílnum sem er leyfi fyrir bílnum á svæðinu og leyfi inn á svæðið.

Poolpass: Mikilvægt er að fólk hafi með sér svokallaðann „poolpass“ þegar farið er út í laugina sem er rétt við húsið.  Þeir eru í skenknum undir sjónvarpinu.  Sjá mynd:

Sími í hliðinu er;
407-380-5672  Gott er að vita að ef það þarf að hleypa gestum inn á svæðið, þá er það gert í gegnum https://gateaccess.net/login.aspx

Username:  3219478989 og passw: 002122

Aðrir símar sem eru mikilvægir eru:
Pro shop (til að panta rástíma á Ventura golfvellinum) 407-277-2640
Veitingarstaðurinn á ventura 407-380-1822
Admin á Ventura (einungis í neyð) 407-275-7002
Þórður Magnússon, eigandi hússins,  499 1234 –  ef hringt er úr bandarísku númeri þá þarf að velja +354 499 1234.

Sjónvarpið

Sjónvarpið.  Við erum með Spectrum áskrift.

Hægt er að skoða dagskrá sjónvarpsstöðvanna á netinu:  http://tvexplorer.brighthouse.com./#   ZIP code 32822 ef spurt er.

Ef einhver lendir í vandræðum með að kveikja á sjónvarpinu þá er ítarefni hér:

Internet;
Í húsinu er þráðlaust internet. Til að tengjast því þarf að finna í wireless network net sem heitir „MySpectrumWiFi0-2G“ og lykilorðið (Password) er “braveocean267”  Netið er nokkuð öflugt, okkar reynsla er um 400mbsec.

Þegar það er fundið þá er lykilorðið inn á netið líka í skúffunni sem poolpassarnir eru.

Ísskápurinn er með síuðu vatni sem er að minnsta kosti eins gott og vatn sem keypt er út í búð.  Það er því alger óþarfi að kaupa vatn og bera inn – nema menn vilji það að sjálfsögðu.  Ef eitthvað er til/skilið eftir í ísskáp eða frysti þá um að gera að nota það ef áhugi er eða lyst á

Reyklaus hús;  Þeir sem reykja geta samt reykt á útisvölum/úti í garði sjá mynd.  Bara þá verður hurðin inn í íbúðina að vera lokuð, algert skilyrði.

Gott að vita;
Íslendingar hittast í klúbbhúsinu á miðvikudögum kl 17.

Annað; Þegar húsinu er skilað vinsamlegast stillið kælinguna á húsinu (AC- ið) á auto og á 28 gráðu hita.  (82 gráður Farenheit) og muna að slökkva á kaffikönnu en ekki eyða tíma í þrif.